Viðskipti innlent

Spákaupmaðurinn: Rífur sig upp úr þunglyndi

Aldrei hefði ég trúað því að maður gæti orðið jafn þungur og forn í skapi í byrjun desember. Hef varla getað drattast úr bælinu á morgnana. Hingað til hef ég getað kastað út hvaða neti sem er í desember og fangað óteljandi golþorska í formi hækkandi hlutabréfa. Desember er líka jólamánuðurinn í hlutabréfunum. En nú ber svo við að ég hef aðallega verið að selja hlutabréf síðustu vikurnar og setja þá á hliðarlínuna. Ég fór því að spyrja mig hvort ég kynni að hafa blindast af stemningsleysinu og sólarleysinu í nóvember. Kannski voru menn bara að ná andanum eftir hækkanirnar í september og október?

Já, auðvitað var ég ekki einn um það að vera fullur af bölsýni því það voru bara allir í þunglyndiskasti. Ég ákvað því að rífa mig upp úr volæðinu í gær; keypti mér jólaöl, gott hangilæri og bréf í Icelandair Group

Það þarf ekki mikla reynslu til að sjá að útboð eru ávísun á skammtímagróða jafnvel þótt Lansinn hafi mælt með kaupum til langtíma. Þetta ætti að vera „safe bet“ vegna duldu eignanna í flugvélunum. Halda menn virkilega að Finnur Ingólfsson fari fyrir fjárfestum sem kaupi köttinn í sekknum? Svo kemur líka í ljós að Glitnir (og þar með FL) á bara töluvert í Icelandair eftir allt saman.

Ég keypti í ríkisbönkunum, Kaupþingi, Össuri, Mosaic, Opnum kerfum, Exista, Bakkavör og græddi á öllu nema Íslenska járnblendifélaginu og Talenta-Hátækni en þau bréf runnu til allrar hamingju inn í Íshug og síðar Straum.

En auðvitað verður maður líka að líta yfir farinn veg og muna að þetta ár hefur verið óvenju einkennilegt. Miklar sveiflur og geðshræringar í kringum bankana. Ég slapp reyndar við leiðindin í sumar, enda alltaf í veiði. Og við erum bara að horfa fram á fimmtán prósenta ávöxtun í ár sem hefði einhvern tíma þótt saga til næsta bæjar.

En auðvitað er bjartsýnin dyggð í spákaupmennsku og lykillinn að góðum árangri mínum í gegnum tíðina. Ég spái því að næsta ár verði betra en þetta og bara spurning hvenær Kaupþing, Exista og hin fjármálafyrirtækin fari almennilega í gang.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×